....þar sem banjó tónlistin hljómar

laugardagur, mars 27, 2004

Örvæntingafull tilraun Norðmanna til að halda í gettóbúa. 

Það er greinilegt að Norðmenn vilja ólmir halda okkur gettóbúum í landinu. Í dag reyndu þeir lúmska og örvæntingafulla tilraun til að láta okkur missa af Norrænu sem leggur frá bryggju klukkan 6:30 í fyrramálið. Norðmenn gerðu sér lítið fyrir og ákváðu að tímanum skildi flýtt um einn klukkutíma frá og með miðnætti í kvöld. Ekki þótti þeim þó ástæða til að láta okkur vita af þessu sérstaklega en eðlisávísun dítektiv Stæn sagði henni að eitthvað væri bogið við hegðun fólks í dag og tók hún því á skarið og keypti dagblaðið. Þar mátti sjá á dulmáli að tímanum ætti að breyta. Dulmál þetta er svipað og dítektiv Stæn hefur verið að læra í vetur og gat hún því lesið greinina.......Já þeir eru lúmskir þessir Norðmenn en örvæntið ekki allt er á áætlun......eins og er......

Óðinn Ás.

fimmtudagur, mars 25, 2004

Á fullu að pakka! 

Við erum búin að vera á fullu undanfarið við að pakka og gera klárt fyrir heimferð. Af einhverri undarlegri ástæðu held ég að maður eigi bara eftir að sakna gettósins örlítið.....okkur tókst að koma okkur ótrúlega vel fyrir í litlu íbúðinni og já hér er bara nokkuð gott að vera.

Síðasti sláturkeppurinn verður soðinn á morgun við mikinn fögnuð gettóbúa og borðaður með bestu list.

Það er svo sem ekkert að frétta þannig að við segjum þetta gott í bili en ég vill minna á að við komum til Seyðisfjarðar klukkan níu á þriðjudagsmorgun (30.mars) og mun ég búast við múg og margmenni á bryggjunni til að bjóða okkur velkomin. Allar gjafir eru líka vel þegnar en skulu þó sendast til mömmu þar sem við höfum ekki mikið pláss í bílnum. Já og svo ætla ég að halda alsherjar partý fljótlega eftir að ég kem heim fyrir helstu vini og kunningja þannig að ef þú lesandi góður ert einn af þeim þá er þér hér með boðið.

Óðinn Ás.

mánudagur, mars 22, 2004

Það held ég nú 

Lífið er rólegt og þæginlegt í gettóinu þessa dagana. Stína hefur verið að dunda sér við að mála og læra undir norskuprófið sem hún er að fara í 23. mars. Ég hef hins vegar verið að einbeita mér að því að bryðja creatín og borða á tveggja tíma fresti en ég er kominn á prógramm DAUÐANS og ég þarf að passa að borða rosalega vel á meðan. Ég lyfti með þjálfaranum og ég hef sjaldan lent í öðru eins...lyftingar hafa fengið nýja meiningu....svakalega erfitt en auðvita er þetta eina leiðin til að ég þyngist. Annars er maður bara að slappa af og bíða eftir að komast á klakan aftur og vonandi byrja að vinna.

Við erum aðeins byrjuð að pakka og erum að reyna að selja hluti sem við nennum ekki að taka með okkur heim. Náðum að selja tvær dýnur og erum enn að reyna að selja sjónvarpið.....Ég er svolítið stressaður yfir því að við séum búin að sanka að okkur of mikið af drasli og það verður erfitt að koma þessu öllu heim.

Símon frændi hringdi í mig um daginn og ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum maðurinn er víst orðið vaxtaræktartröll búinn að þyngja sig um 15 kíló úr 65 kg í 80 kg.......Ég ætla að fara suður eins fljótt og ég get til að rannsaka málið nánar og mun ég fara fram á lyfjapróf :)

Ekkert svo sem að frétta þannig lagað héðan.....

Óðinn Ás.

miðvikudagur, mars 17, 2004

Ferðin endalausa 

Það er búið að vera erfitt að komast á netið undanfarið þannig að við höfum ekki getað endað ferðasöguna.......Sem sagt þá lentum við í Osló um 21:30 á mánudaginn og ákváðum að leggja af stað keyrandi til Bergen, lögðum af stað um 23:00. Áætlaður komutími til Bergen var um 04:00 en sú áætlun fór nú eitthvað úr skorðum því við komum til Bergen klukkan 11:00, sem sagt tólf tíma ferðalag frá Osló sem venjulega tekur um 5-6 tíma. Ástæðan var að vegurinn var lokaður og lögðum við okkur í bílnum milli 3:00 og 7:00 en þá fengum við að elta snjóblásara yfir hálendið og það var eins gott því það voru 3 metra háir skaflar meðfram veginum. Vegurinn hér í Noregi er er allur í hlykkjum og brekkum og hvergi meiri hámarkshraði en 80 km/klst og ekki hægt að komast yfir mikið meira en 70 km á klukkutíma í hálku.....Any way þá var þetta samt fín ferð því við sáum elg sem okkur hefur langað til að sjá síðan við komum hingað því þetta á að vera svona þjóðardýr Norðmanna, við vorum samt ansi nálægt því að keyra hann niður því honum fannst upplagt að nota bílljósabirtuna til að komast yfir veginn, Abs-bremsurnar gerðu sitt gang og allt fór vel.

Annars er ég bara ekki í neinu stuði til að skrifa neitt núna......meira á morgun vonandi ef við komumst á netið þá.

Óðinn Ás.

mánudagur, mars 15, 2004

Uti er aevintyri...... 

Jaeja tha er kominn 15. og vid forum heim i dag. Brottfor klukkan 19 thannig ad vid hofum enn tima til ad skoda orlitid meira..... I gaer var farid i dyragardinn og thad var meirihattar en meira af thvi sidar. Best ad hafa thetta ekki lengra thvi vid eigum enn eftir ad versla pinu meira :)

laugardagur, mars 13, 2004

Bedid eftir 21 grammi 

Tekniker talar:
Vid sitjum i teknonetbullu i storu verslunarmidstodinni. Vid akvadum ad fara i bio thridja kveldid i rod (21 grams) thvi ad vid aetludum a korfuboltaleik hja sparta prag en misskildum timasetninguna a leiknum eins og svo margt annad her. Vid nadum adeins seinustu 3 minutunum af leiknum og Odinn ekki anaegdur med thad, sem er skiljanlegt thvi ad vid tokum metro lengst uti buskann og svo tram+labb. En vid kippum okkur ekki upp vid thad.


Vid fundum daldid oflugan markad i morgun, rekin af asiubuum og thar matti kaupa allskyns fatnad a lagu verdi. Eg keypti 5 por af sokkum a 130 kr isl hehe magnad. Mjog gott ad eiga mikid af sokkum a ferdalagi.
Bordudum a lifraenum graenmetisstad i dag, snilld.
Annars rolegur dagur i dag, er farin ad na gridarlegum hrada i ad labba nidur rullustiga. :)
Eigid godar stundir a skerinu.
Tekniker og Odinn

föstudagur, mars 12, 2004

Kvol og pina 

Ofangreindur titill a ekki vid dvol okkar i Prag heldur Museum of Torture. Mjog skuggalegt safn sem vid skodudum i dag og eg er ekki fra thvi ad thad hafi farid hrollur og vidbjodstilfinning um likamann. Vissud thid ad i gamla daga voru hommar hengdir upp a afturloppunum og sagadir i tvennt, fra klofi og nidur, med tresog! Thvilikur vibbi margt sem madur sa tharna.

Vid erum buin ad vera dugleg ad skoda okkur um i dag og gaer, vorum svo dugleg i gaer ad vid sofnudum fyrir 10 um kvoldid yfir Liverpool leik....reyndar er Liverpool leikur eins og gott svefnlyf enda spila their leidinlegasta bolta sem sest hefur....any way vid forum a safn med allskonar veiditaekjum, reyndar ekki veidistangir heldur byssur, hnifar, sverd og lasbogar. Mjog ahugavert og merkilegt hvad mennirnir voru fljotir ad finna upp byssuna, byssur tharna fra 16 old.

Vid forum a Vaxmyndasafn sem var reyndar meira eins og draugahus thvi thad var nidamyrkur tharna inni og allt fullt af speglum thannig ad manni fannst alltaf eins og madur vaeri ekki alveg einn.....skeeeeeery....Talandi um scary ekki fara a myndina Gothica med Halle Berry, Vid villtumst inna thessa mynd og eins og a ollum almennilegum hrollvekjum tha var eg (Odinn) med lokud augun mest allan timann....Eg er bara ekki ad hondla svona ogedismyndir!

I gaer forum vid i hinn fraega Prag Kastala en hann er vinsaelasti ferdamannastadurinn her i Prag og ekki skritid. Prag Kastali er staersti kastali i heimi eftir thvi sem vid komumst naest. Inni kastalanum er svo RISA stor kirkja sem er ROSALEGA mikid skreytt med gulli og odru glingri.

Naest forum vid svo i eftirlikingu af Eiffelturninum sem their Tekkar eiga....frabaert utsyni en a timabili full hatt fyrir mig (Odinn) enda lofthraeddur med afbrigdum.....ok....eg er nu meiri gungan....verd ad fara ad kallmannast.....eg er sko ekki hraeddur vid neitt og er med mikid skegg og dimmraddadur...sem er merki karlmennsku ad mati onefndsadila.....any way....hvar vorum vid.......ja vid smokkudum (ok kemur ekki vel ut ef madur hefur ekki islenskt lyklabord), vid sem sagt brogdudum tekkneskan mat i gaer og thad var vaegast sagt ekki skemmtileg lifsreynsla..jakk......maturinn samanstod af *kartofluundri* miklu sem var graent a lit og nokkud thett i ser. (i laginu eins og zeppelin belgur) *Kartofluundrid* la a hrugu af suru kali og drukkum vid bjor med. Gud se lof fyrir ad vid drukkum bjor med, hann er thad besta sem kemur hedan i formi naeringar.
Thetta er meira en nog i bili....efast um ad einhver nenni ad lesa thetta bull, en their sem nenna geta fylgst med thessari aesispennandi ferdadagbok a morgun en tha er planid ad fara a korfuboltaleik med Sparta Prag, skoda National museum, gonguferd um jewish ghetto og versla ekta Prag bjorkonnur sem eru nokkud serstakar.

Ahoj

Stonsky og Odosky

miðvikudagur, mars 10, 2004

Can I have the check please. check i tekklandi muuuhahahaa! 

Ja humorinn er a hau stigi hja okkur i kvold enda bjorinn a leidinni.....Vid forum hamforum i dag! Forum i tur um borgina baedi labbandi og i bat og thad var guide og allt. Mjog gaman ad thvi ad fa svona sogur af stodunum. Svo var haldid i Kommunista safnid sem var ahugavert en frekar nidurdrepandi thvi thetta voru ekki fallegir timar her i landi. Eftir toluvert budarrap i HUGES verslunarmidstod fengum vid okkur kriu adur en vid heldum a sinfoniutonleika. Sinfonian var mjog skemmtileg og voru morg vinsael log tekin eftir t.d. Mozart, Vivaldi og Bach.

Eins og sja ma hefur thetta verid annasamur dagur en buast ma vid enn vidburdarrikari degi a morgun en stefnan er sett a museum of torture devices (piningartol), skoda Prag kastalann og Effeilturn Tekka.....og hver veit nema ad vid komum orlitlu budarrapi fyrir a planinu.

Thad helsta sem verslad var i dag er eftirfarandi:
finir skor a OA
Creatin handa OA
raudir thorssokkar til ad spila i naesta vetur OA
multivitamin te handa stininsky
aefingateygja handa Stininsky

Mataraedid var gott ad vanda....Laxalasagna, kjuklingafettuccini, supur, KFC,pylsur, bakarisbakkelsi, bjor, heitt vin, og margt fleira......sem sagt godur dagur ad kveldi kominn og bjodum vid goda nott!

Odinvetsky og Stinsvedskinsky

þriðjudagur, mars 09, 2004

Tjekkad a Tekklandi......tjekk this out... 

Hallo!
Tha erum vid komin til Tekklands(Prag) og allt ad gerast....Hotelid er fint en ekkert likt myndinni sem vid saum af thvi a netinu....svo kom kukalyktin sem er inna badi ekki fram a netmyndinni :(

Vid erum buin ad labba um midbaeinn i allan dag og versla ymislegt smadot og fa okkur passa i allt sem hreyfist her i Prag (lest, metro, tram, bus). Thad er buid ad snjoa her i allan dag og frekar kalt en vid saum vid vedurdjoflinum og klaeddum okkur i gammosiur og thykkar ulpur.......naest segir fra mat og drykk her i Prag.....Meirihattar matur herna og rosalega odyr, vid erum buin ad borda a tveimur finum veitingastodum i dag fyrir samtals 3000 kr og vid erum sko ad tala um forrett, adalrett, vin, gos og bjor.....talandi um bjorinn, bjorinn her er med theim betri sem vid hofum smakkad...namminamm...mildur, godur og svalandi og ja hrae odyr eins og allt matarkyns her.

Eins og log gera rad fyrir keyptum vid kristal i dag, tvo fiska med svona einhverjum lit inni og er stefnan sett a ad fjarfesta i nokkrum kristalglosum adur en vid forum heim. Einnig versladi Stina ser bakpoka og ymislegt fatarkyns og Odinn versladi halsmen og kross og svolitid donalegt handa klamhundunum heima (thid vitid hverjir thid erud). A morgun er stefnan sett a kapu handa Stinu og Russahatt, afa hatt (kaskeiti) og bjorkonnu handa Oda.

Ja nog i bili vid erum farin upp a hotel ad sotra bjor og skipuleggja morgundaginn....
goda nott

Odinvic og Stinicova

föstudagur, mars 05, 2004

Tæknin er að stríða okkur 

Já ég ætlaði að vera duglegur áðan og setja inn nokkrar góðar myndir í albúmið en einhverra hluta vegna gekk það ekki þannig að ég verð að bíða eftir að Tekniker kemur heim svo hún geti reddað þessu......sennilega kom þessar myndir ekki inn fyrr en eftir Prag ferðina

Ég skutlaði Stínu á lestarstöðina áðan en hún er á leiðinni til Osló að hitta foreldra sína sem koma til Osló á morgun. Þetta er fyrsta lestarferð Stínu og á hún örugglega eftir að skemmta sér konunglega enda með eindæmum skemmtilegt að ferðast með lest. Ég er sem sagt einn í kotinu í dag og á morgun og bíða mín gríðarlega mörg og krefjandi verkefni. Þar er helst að nefna þrif á bíl og íbúð, uppvask og þvo þvott.....ussuss þetta verður laaaaaaangur dagur á morgun.....neinei ég geri þetta auðvita allt á hverjum degi þannig að ég kvíð engu.

fimmtudagur, mars 04, 2004

webcam 2 

fann líka webcam sem sýnir Bergen, ef vel er að gáð má sjá vettvang samfélagstilraunarinnar ógurlegu niðrá bryggju.
http://www.floibanen.no/eng/webcam.html

fleiri hlutir til að gleðjast yfir 

Fattaði eitt í morgun, ég fann webcam (myndavél sem tekur myndir á ákv stað í heiminum með reglulegu millibili og er á netinu)
sem að sýnir tvo staði í Prag, fyrir þá sem ekki vita þá erum við Óðinn að fara til Prag 9. - 15. mars og verðum kannski ekki alveg eins virk að blogga, samt aldrei að vita nema við kíkjum á netkaffi.

Já ég ætla að setja link á webcam í Prag núna og þá er hægt að sjá hvort sé flóð eða blindbylur eða þessháttar hehe. Svo ef þið fylgist vel með getið þið kannski séð okkur Óðinn á Karlsbrúnni. Verðum að muna að vera í áberandi fötum með íslenska fánann.

Það held ég nú.......jájá 

Fór á æfingu í fyrradag í fyrsta skipti síðan tímabilið endaði um miðjan febrúar. Merkilegt hvað maður er fljótur að detta úr formi, mér líður eins og ég hafi verið að ljúka við marþon....alveg búinn.

Spennan er í algleymingi hér í gettóinu enda örfáir dagar í Pragferðina miklu.

Ég hef komist að því að ég er sennilega latasti maður í heimi! Ég hef nákvæmlega ekkert að gera þangað til að við förum heim og geri lítið annað en að hanga á netinu og horfa á sjónvarpið....jú reyndar kemur fyrir að maður kíki í smá bolta. Ég nenni ekki einu sinni að útskýra það nánar af hverju ég er latasti maður í heimi.....en ég er það.

Við tókum nokkrar góðar myndir í gær en ég bara nenni ekki að setja þær inn núna þannig að þær koma vonandi á morgun....á morgun segir sá....

Ég mæli með eggjasalatinu sem mamma minntist á í einu commentinu hér að neðan. Þetta er alveg meiriháttar gott eggjasalat....þið bara verðið að prufa að búa svona til...Reyndar mæli ég með því að þið haldið ykkur frá öðru fólki næstu daga á eftir þar sem þetta eggjasalat virðist stökkbreytast í undarlega lyktandi lofttegund á leiðinni í gegnum líkaman.

Já og jæja ég er nú hræddur um það, hef nákvæmlega ekkert að segja þannig að ég ætla að fara að eyða mínum dýrmæta tíma í eitthvað gáfulegra.....já kannski bara í svefn

Óðinn Ásssssssszzzzzzzzzzzzzzzzz zzz zzzzz

þriðjudagur, mars 02, 2004

Samfélagstilraun meðal almennings niður á bryggju 

Gleði Teknikers:
Ég er mjög glöð í dag, hef ákveðið að breiða út hamingjuna með því að brosa framan í heiminn við hvert tækifæri. Reyndar mistókst það aðeins niðrí bæ í gær þegar ég ákvað að ausa úr brunni gleði minnar með því að brosa og horfa framan í viðkomandi í svona 2 sekúndur meðan ég gekk framhjá. Ég hef nefnilega tekið eftir því að fólk niðrí bæ í Bergen, á Íslandi og víðar lítur í burtu í offorsi þegar það labbar framhjá manni og vill helst vera í eigin heimi. (og hef ég oft gert það sjálf)

Þessu til sönnunar er sérstakt skilti í neðanjarðarlestinni í London sem ráðleggur fólki að líta ekki framan í neinn meðan á ferðinni stendur af ótta við að ögra einhverjum. HVAÐ ER MÁLIÐ!!! Eigum við öll að byrja að hræðast hvert annað alveg eins og í Bandaríkjunum þar sem allir eiga byssu bara svona just in case ef að nágranninn kemur og ætlar að ráðast á mann...
Svo annað, fólk er orðið svo hrætt við allt nú til dags að þegar ég var að lesa mér til um Prag um helgina þá er sérstakur kafli um hvað maður eigi að hræðast þar, hvar maður eigi nú ekki að vera osfrv. Er ekki svolítið verið að segja manni að vera hræddur allan daginn eða.........
Jæja en nú að tilrauninni:

Þetta gekk gríðarvel og fólk byrjaði að brosa og á manneskju nr. 15 þá labbaði ég framhjá þeldökkum dreng og hann byrjar að flauta og reyna að tala við mig....sko ekkert kynþáttahatur eða neitt en af hverju brást eina manneskjan af 15 svona við. Ætli hann sé orðin svona vanur því að fólk líti undan með viðbjóði eða eitthvað þegar það labbar framhjá honum...sko hér í Noregi. En samt 14 af 15 náðu kannski að byrja að brosa líka (vonandi af réttum ástæðum), sem er mjög gott meðaltal.....
Já brosum meira og niður með hræðslu og eigið góðan dag.

mánudagur, mars 01, 2004

Ógeðsleg mynd! 

Já ég horfði á ógeðslega mynd áðan...Hún heitir Pearl Harbour og er byggð á sannsögulegum atburðum. Þetta er mesta þvæla sem ég hef séð og ég er verulega pirraður! Eins og flestir vita gerðu Japanir skyndiárás á herstöðvar bandaríkjamanna sem staðsett var í Pearl Harbour. Eitthvað um 3000 bandarískir hermenn létust í árásinni og fjallar þessi mynd sem sagt um þessa atburði og fá áhorfendur að fylgjast með nokkrum persónum sem staðsettar voru í Pearl Harbour þegar árásin var gerð. Það sem fer ofboðslega í taugarnar á mér í þessari mynd er hvað það er gert rosalegar hetjur úr bandaríkjamönnum. Þeir eru gerðir að góðu mönnunum í þessari mynd...réttara sagt að algjörum dýrlingum en hvergi kemur fram í myndinni hvað fylgdi í kjölfarið. En nokkrum árum seinna vörpuðu bandaríkjamenn tveimur kjarnorkusprengjum á Japan þar sem um 300.000 saklausir borgara létust.....Einhvernvegin fá kanarnir það samt út að þeir séu góðu gæjarnir í þessu öllu saman. Dæmi nú hver fyrir sig....3000 hermenn látast í árás á hernaðarlegt skotmark eða 300.000 borgarar látast í árás á borgir með engan hernaðarlegan tilgang. Svo eru kanarnir alveg gáttaðir á því að það sé svona mörgum illa við þá og það versta við þetta er að þetta er bara eitt snjókorn á ísjakanum, þeir hafa gert margt svipað slæmt og þetta. Aftur að myndinni.....Ég verð að stofna nýjan flokk í kvikmyndagagnrýninni minni fyrir þessa mynd og mun sá flokkur vera fyrir myndir sem eru ógeðslegar og mannskemmandi. Þessi mynd skuldar sem sagt 5 stjörnur og tvo tíma af lífinu mínu!

Óðinn Ás........mjög pirraður

This page is powered by Blogger. Isn't yours?